Results for 2026

Maistre

10.5.2026 kl. 15:55 - Sveinbjörn Þórðarson

Þegar ég var ungur fræðimaður að stúdera heimspeki 18. aldar datt ég í að lesa verk kaþólska íhaldsmannsins Joseph de Maistre (1753–1821) og eitthvað greip mig. Ég hataði andstyggilegu pólitík hans á sínum tíma (og geri enn) en gaurinn skrifaði afar grípandi franska texta sem ég dáist að. Smá dæmi (í enskri þýðingu Isaiah Berlin):

In the whole vast dome of living nature there reigns an open violence, a kind of prescriptive fury which arms all the creatures to their common doom: as soon as you leave the inanimate kingdom you find the decree of violent death inscribed on the very frontiers of life. You feel it already in the vegetable kingdom: from the great catalpa to the humblest herb, how many plants die and how many are killed; but, from the moment you enter the animal kingdom, this law is suddenly in the most dreadful evidence. A power, a violence, at once hidden and palpable... has in each species appointed a certain number of animals to devour others: thus there are insects of prey, reptiles of prey, birds of prey, fishes of prey, quadrupeds of prey. There is no instant of time when one creature is not being devoured by another. Over all these numerous races of animals man is placed, and his destructive hand spares nothing that lives. He kills to obtain food and he kills to clothe himself; he kills to adorn himself; he kills in order to attack and he kills in order to defend himself; he kills to instruct himself and he kills to amuse himself; he kills to kill. Proud and terrible king, he wants everything and nothing resists him ... from the lamb he tears its guts and makes his harp resound ... from the wolf his most deadly tooth to polish his pretty works of art; from the elephant his tusks to make a toy for a child -- his table is covered with corpses ... And who in this general carnage will exterminate him who exterminates all the others? Himself. It is man who is charged with the slaughter of man ... So it is accomplished ... the great law of the violent destruction of living creatures. The whole earth, perpetually steeped in blood, is nothing but a vast altar upon which all that is living must be sacrificed without end, without measure, without pause, until the consummation of things, until evil is extinct, until the death of death.
Separator

11 þúsund

24.4.2026 kl. 21:27 - Sveinbjörn Þórðarson

Jæja, 11 þúsundasta viðbótin við ensk.is var að fara í loftið! Út frá tölfræðinni gerir það að meðaltali rúmlega 2600 viðbætur á ári, eða sirka 7 á dag, síðustu fjögur ár. Á næstunni mun ég bæta almennilegri Model Context Protocol virkni og formlegri skemu við forritaskil (API) vefsins, og athuga hvort það geti bætt þýðingargetu smærri "open weights" mállíkana milli íslensku og ensku.

Separator

40 þúsund flettur

4.3.2026 kl. 19:42 - Sveinbjörn Þórðarson

Færslurnar í ensk.is eru orðnar 40 þúsund, þar af tæplega 11 þús. viðbætur [!]. En hvað er tala, svosem? Við notum tugakerfi en ekki tólfundakerfi eins og Babylóníumenn. Það er í sjálfu sér ekkert heilagt við 40k. En maður verður að leyfa sér að fagna áföngum, og þessi er svosem ekki verri en hver annar. Þetta er búið að taka rúmlega 4 ár af vinnu í hjáverkum. Gaman frá því að segja að vefurinn er fjölsóttari með hverjum mánuðinum sem líður, og umfang og gæði gagnasafnsins heldur áfram að batna. Það eru nú bara um 6 þúsund flettur eftir á áriðandi verkefnalistanum.

Separator

Mengun

25.2.2026 kl. 21:34 - Sveinbjörn Þórðarson

Internetið hefur hingað til keyrt á því prinsípi að allt sé hvítlistað, og þeir sem haga sér illa fari á svartan lista. En mengun sameiginlega upplýsingarýmis okkar af vélrænum gervigreindartexta er þess eðlis að við þurfum gersamlega að breyta líkaninu, snúa því á hvolf. Fara í kerfi þar sem allt er svartlistað, nema það sem er á hvíta listanum og hægt er að treysta. Gamli draumurinn sem var mér svo kær þegar ég var ungur maður, draumurinn um opna og frjálsa internetið, er sannarlega dauður. Það hryggir mig. RIP.

Separator

Those who can

10.1.2026 kl. 18:22 - Sveinbjörn Þórðarson
"Those who can, do. Those who can't, teach."

Fáránleg staðhæfing sem sýnir fávisku og skilningsleysi bjánans sem lét sér detta þennan frasa fyrst í hug. Maður veit varla hvar á að byrja. Í fyrsta lagi, þá eru það einmitt þeir sem hafa gert hluti sem eru bestu kennararnir. Í öðru lagi, þá er framlegð þeirra sem deila kunnáttu sinni þess eðlis að hún fer til margra og hefur margföldunaráhrif út um allt samfélagið, og gerir okkur öll auðugri. Ég væri sannarlega annar og minni maður án alls þess sem ég lærði af mínum mörgu frábæru kennurum. Að tala niður kennarastarfið á svona yfirborðskenndan hátt gerir engum neinn greiða. Það ber vott um fúndamental skilningsleysi varðandi hvernig uppbygging þekkingar, kunnáttu og sköpunar á sér stað í samfélaginu. Svei! Og ég er ekki einu sinni kennari.

Separator

Utanríkisstefna

5.1.2026 kl. 13:23 - Sveinbjörn Þórðarson

Utanríkisstefna Íslands ætti að vera að grípa um vinstri fótlegg Noregs, eins og lítið barn, halda eins fast og hægt er, og hreinlega vona það besta. Hvað eru 700 ár milli vina?

Separator

Venesúela

4.1.2026 kl. 09:18 - Sveinbjörn Þórðarson

Mig minnir að ég hafi verið um tvítugt þegar ég las fyrst bækur Chomskys og kynntist sóðalegri sögu Bandaríkjamanna í latnesku Ameríku. Ég ætla ekki að þykjast vita hvernig þetta fer allt saman, en eitt er víst - að þetta endar allt saman í tárum, tárum þeirra sem fá að njóta "lýðræðisvæðingarinnar".

Separator