Results for 2026

40 þúsund flettur

4.3.2026 kl. 19:42 - Sveinbjörn Þórðarson

Færslurnar í ensk.is eru orðnar 40 þúsund, þar af ~11 þús. viðbætur [!]. En hvað er tala, svosem? Við notum tugakerfi en ekki tólfundakerfi eins og Babylóníumenn. Það er í sjálfu sér ekkert heilagt við 40k. En maður verður að leyfa sér að fagna áföngum, og þessi er svosem ekki verri en hver annar. Þetta er búið að taka rúmlega 4 ár af vinnu í hjáverkum. Gaman frá því að segja að vefurinn er fjölsóttari með hverjum mánuðinum sem líður, og umfang og gæði gagnasafnsins heldur áfram að batna. Það eru nú bara um 6 þúsund flettur eftir á áriðandi verkefnalistanum.

Separator

Mengun

25.2.2026 kl. 21:34 - Sveinbjörn Þórðarson

Internetið hefur hingað til keyrt á því prinsípi að allt sé hvítlistað, og þeir sem haga sér illa fari á svartan lista. En mengun sameiginlega upplýsingarýmis okkar af vélrænum gervigreindartexta er þess eðlis að við þurfum gersamlega að breyta líkaninu, snúa því á hvolf. Fara í kerfi þar sem allt er svartlistað, nema það sem er á hvíta listanum og hægt er að treysta. Gamli draumurinn sem var mér svo kær þegar ég var ungur maður, draumurinn um opna og frjálsa internetið, er sannarlega dauður. Það hryggir mig. RIP.

Separator

Those who can

10.1.2026 kl. 18:22 - Sveinbjörn Þórðarson
"Those who can, do. Those who can't, teach."

Fáránleg staðhæfing sem sýnir fávisku og skilningsleysi bjánans sem lét sér detta þennan frasa fyrst í hug. Maður veit varla hvar á að byrja. Í fyrsta lagi, þá eru það einmitt þeir sem hafa gert hluti sem eru bestu kennararnir. Í öðru lagi, þá er framlegð þeirra sem deila kunnáttu sinni þess eðlis að hún fer til margra og hefur margföldunaráhrif út um allt samfélagið, og gerir okkur öll auðugri. Ég væri sannarlega annar og minni maður án alls þess sem ég lærði af mínum mörgu frábæru kennurum. Að tala niður kennarastarfið á svona yfirborðskenndan hátt gerir engum neinn greiða. Það ber vott um fúndamental skilningsleysi varðandi hvernig uppbygging þekkingar, kunnáttu og sköpunar á sér stað í samfélaginu. Svei! Og ég er ekki einu sinni kennari.

Separator

Utanríkisstefna

5.1.2026 kl. 13:23 - Sveinbjörn Þórðarson

Utanríkisstefna Íslands ætti að vera að grípa um vinstri fótlegg Noregs, eins og lítið barn, halda eins fast og hægt er, og hreinlega vona það besta. Hvað eru 700 ár milli vina?

Separator

Venesúela

4.1.2026 kl. 09:18 - Sveinbjörn Þórðarson

Mig minnir að ég hafi verið um tvítugt þegar ég las fyrst bækur Chomskys og kynntist sóðalegri sögu Bandaríkjamanna í latnesku Ameríku. Ég ætla ekki að þykjast vita hvernig þetta fer allt saman, en eitt er víst - að þetta endar allt saman í tárum, tárum þeirra sem fá að njóta "lýðræðisvæðingarinnar".

Separator